Fréttir

27. janúar 2012 12:32

Finnur Sveinsson: Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja

Finnur Sveinsson, sérfræðingur í samfélagslegri ábyrgð hjá Landsbankanum, fjallar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja í grein sinni sem birtist á umræðuvef bankans. Finnur fer yfir hvernig skilningur á hugtakinu "samfélagsleg ábyrgð" hefur tekið breytingum í tímanna rás, allt frá skilgreiningu hins þekkta hagfræðings Milton Friedmans á hugtakinu yfir í nútímalegri skilgreiningu á því.

Finnur segir meðal annars í greininni: "Samkvæmt nútíma skilningi á samfélagslegri ábyrgð er henni ætlað að skapa fyrirtækjum betri samkeppnisstöðu. Ef það gengur ekki eftir þá þýðir það að staða viðkomandi fyrirtækis versnar gagnvart þeim fyrirtækjum sem ekki eru samfélagslega ábyrg. Þess vegna eiga fyrirtæki engan valkost, þau verða að tryggja að þau verkefni sem þau taka þátt í undir merkjum samfélagslegrar ábyrgðar, styrki stöðu þeirra. Annars er framkvæmdin óábyrg".

Hægt er að lesa grein Finns í heild sinni á Umræðuvef Landsbankans.



Til baka