26. janúar 2012 16:01
Sameining Markaðsbréfa stuttra og Markaðsbréfa langra
Fyrirhugað er að Markaðsbréf stutt renni inn í Markaðsbréf löng þann 16. febrúar næstkomandi. Lokað er fyrir kaup á hlutdeildarskírteinum í Markaðsbréfum stuttum frá og með 24. janúar 2012. Hlutdeildarskírteinishöfum í Markaðsbréfum stuttum hefur verið sent bréf um fyrirhugaða sameiningu.
Eigendur hlutdeildarskírteina Markaðsbréfa stuttra hafa tíma til að taka afstöðu til þessara breytinga til 16. febrúar næstkomandi en þá mun eign þeirra sjálfkrafa færast inn í Markaðsbréf löng. Sameinaður sjóður mun frá þeim tíma bera nafnið Markaðsbréf. Við færsluna mun enginn kostnaður falla á sjóðfélaga og markaðsvirði hlutdeildarskírteina helst óbreytt.
Ásamt því að sameina sjóðina mun ný fjárfestingarstefna sameinaðs sjóðs taka gildi þann 14. febrúar næstkomandi þar sem aukin áhersla er á aðrar eignir en ríkisskuldabréf. Helsta breytingin felst í auknum fjárfestingum í skuldabréfum með ábyrgð sveitarfélaga og auknum heimildum hvað varðar innlán. Nýjar reglur og fjárfestingarstefna eru kynnt í bréfi sem sent hefur verið til hlutdeildarskírteinishafa Markaðsbréfa langra en ný fjárfestingarstefna er einnig kynnt í áðurnefndu bréfi til hlutdeildarskírteinishafa Markaðsbréfa stuttra.
Eigendum hlutdeildarskírteina er bent á að breyttri fjárfestingarstefnu getur fylgt aukin skuldaraáhætta. Þeir sem ekki eru tilbúnir til að taka þá áhættu er bent á úrval ríkisskuldabréfasjóða undir nöfnum Sparibréfa. Þeir fjárfesta 90-100% í skuldabréfum og víxlum íslenska ríkisins en hafa einnig heimild til fjárfestingar í innlánum 0-10%. Sparibréfasjóðirnir eru mismunandi hvað varðar verðtryggingarhlutfall og meðallíftíma og þar með vaxtaáhættu. Eftirtaldir Sparibréfasjóðir eru í boði:
- Sparibréf stutt
- Sparibréf meðallöng
- Sparibréf löng
- Sparibréf verðtryggð
- Sparibréf óverðtryggð.
Eigendum hlutdeildarskírteina í Markaðsbréfum stuttum og löngum er heimilt að færa eign sína í aðra sjóði Landsvaka sér að kostnaðarlausu til 15. febrúar. Þó ber að athuga að skattstofn til fjármagnstekjuskatts getur myndast við innlausn.
Nánari upplýsingar um sjóðina má nálgast á landsbankinn.is, landsvaki.is eða hjá verðbréfa- og lífeyrisráðgjöfum Landsbankans í síma 410 4040 eða á fjarmalaradgjof@landsbankinn.is.
Bréf til sjóðfélaga Markaðsbréf löng
Bréf til sjóðfélaga Markaðsbréf stutt
Til baka