26. janúar 2012 17:49
Mikill áhugi er á auknum fjárfestingum í ferðaþjónustu hér á landi. Þetta kom fram á fjölsóttu málþingi sem Landsbankinn og Íslandsstofa stóðu fyrir um fjárfestingar í ferðaþjónustu. Einnig kom fram að það þarf á aukinni innlendri og erlendri fjárfestingu að halda til að auka arðsemi greinarinnar til frambúðar. Ennfremur að það væri þörf fyrir uppbyggingu á fleiri markaðssvæðum í þágu fjölbreyttari afþreyingar og upplifana.
Um 300 manns sóttu málþingið sem haldið var á Hilton Reykjavík Nordica 25. janúar síðastliðinn. Þar fjölluðu innlendir og erlendir sérfræðingar og fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja um fjárfestingar í greininni frá ýmsum hliðum. Kynntar voru niðurstöður nýrrar könnunar sem Capacent vann fyrir Landsbankann og Íslandsstofu um viðhorf fulltrúa ferðaþjónustufyrirtækja til fjárfestinga. Í tilefni af málþinginu vann Hagfræðideild Landsbankans greiningu á stöðu ferðaþjónustunnar og kynnti helstu niðurstöður hennar á málþinginu.
Hægt er að nálgast útdrátt úr erindum framsögumanna ásamt glærukynningum á Umræðuvef Landsbankans.
Skýrsla Hagfræðideildar Landsbankans um ferðaþjónustu á Íslandi
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré