Fréttir

26. janúar 2012 16:09

Landsbankinn lækkar vexti á bílasamningum

Landsbankinn hefur ákveðið að lækka fasta vexti á óverðtryggðum bílasamningum. Vextirnir lækka úr 8,95% í 8,50% og eru fastir fyrstu 36 mánuðina. Þessi lækkun gildir fram til 24. febrúar 2012. Mögulegt er að fjármagna bæði nýja og notaða bíla á þessum kjörum. Veitt verða lán fyrir allt að 70% af kaupverði bíls og er hámarkslánstími 7 ár að frádregnum aldri bílsins.

Viðskiptavinir geta sótt um bílafjármögnun hjá ráðgjöfum Bíla- og tækjafjármögnunar Landsbankans Sigtúni 42 eða í síma 410 4800.

Nánar um bílafjármögnun hjá Landsbankanum

Einnig í boði: Græn bílafjármögnun

Í samræmi við stefnu bankans í samfélagslegri ábyrgð býður Landsbankinn einnig upp á græna bílafjármögnun þar sem lántakendum gefst kostur á að sameina umhverfissjónarmið og hagstæð kjör.



Til baka