Lánasjóður íslenskra námsmanna veitir námsmönnum hérlendis og erlendis lán til að framfleyta sér á meðan á námi stendur. Fyrir flesta námsmenn eru þessi námslán bráðnauðsynleg á námstímanum en allir Námufélagar geta fengið framfærslulán gegn framvísun lánsáætlunar frá LÍN.
Þú sækir um námslán hjá LÍN á "Mitt Svæði" í Einkabankanum og innan fárra daga kemur lánsáætlun frá LÍN inn á sama svæði í Einkabankanum.
Til að sækja um Námureikningslán hjá Landsbankanum, þarft þú að fara í viðskiptaútibú þitt með lánsáætlunina frá Lín og fylla út lánsumsókn. Lánið er í formi yfirdráttarheimildar og greiðir þú mun lægri vexti af því en af almennu yfirdráttarláni.
Þjónustufulltrúinn þinn býr til áætlun fyrir námsárið og færð þú fastar greiðslur í upphafi hvers mánaðar inn á Námureikninginn þinn - eða á þann hátt sem þú óskar.
Þú skráir þig inn í Einkabankann og velur þar tengilinn "Umsókn" undir liðnum "LÍN". Þá opnast nýr gluggi með umsóknareyðublaði, sem sótt er inn á læst vefsvæði LÍN. Með því að sækja umsóknina í gegnum Einkabankann er notandi þegar auðkenndur og gerir umsóknina því hvort tveggja einfaldari og öruggari. Námsmenn geta lokið fullgildri umsókn á vefnum með þessum hætti og þannig sparað sér sporin.
Nokkrum dögum seinna birtist á Einkabankanum lánsáætlun fyrir veturinn og þá getur þú farið í viðskiptaútibú þitt í Landsbankanum og sótt um Námureikningslán.
Til að eiga möguleika á því að fá Námureikningslán hjá Landsbankanum þarftu að vera meðlimur í Námunni og vera komin með lánsáætlun frá LÍN.
Landsbankinn býður þér Námureikningslán gegn framvísun lánsáætlunar frá LÍN, hvort sem er í íslenskum krónum eða erlendri mynt ef þú ert í námi erlendis. Þjónustufulltrúi þinn reiknar út mánaðarlega framfærslu miðað við lánsáætlunina hjá LÍN. Þú færð ákveðna upphæð greidda mánaðarlega inn á Námureikninginn þinn. Þegar námslánin eru greidd út þá leggjast þau inn á reikning hjá bankanum og Námureikningslánið er gert upp. Þess vegna skiptir það máli hvenær kennararnir skila einkunnunum hvenær þú færð námslánin greidd út.
- Löggilt iðnnám og annað samþykkt starfsnám á framhaldsskólastigi. - Sérnám erlendis sem er a.m.k. 1 árs skipulagt nám - Háskólanám hérlendis, grunn- og framhaldsnám - Háskólanám erlendis, grunn- og framhaldsnám (þó eru nokkrar undantekningar til staðar) - Best er að hafa samband við LÍN og kanna hvort þitt nám sé lánshæft. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á lin@lin.is
Lán sem eru í boði hjá LÍN eru: - Framfærslulán - Bókalán - Ferðalán - Skólagjaldalán - Meðlagslán
Þú færð námslánið greitt út frá LÍN þegar námsárangur liggur fyrir og öll tilskilin gögn hafa borist lánasjóðnum. Fyrir haustönn eru námslánin yfirleitt greidd út í janúar, og í maí eða júní fyrir vorönn.
Sækja þarf sérstaklega um námslán fyrir hvert skólaár. Hægt er að sækja um námslán fyrir allt skólaárið, eða hálft námsár í senn. Sækja þarf um námslán fyrir eftirfarandi dagsetningar. - 15. janúar 2010 vegna náms haustið 2009 - 31. maí 2010 vegna náms vorið 2010 - 15. ágúst 2010 vegna viðbótarnáms og sumarnáms 2010
Námsmenn þurfa að skila 100% námsárangri til að eiga rétt á 100% láni. Fullt nám eru 60 ECTS einingar á námsári eða 30 ECTS einingar á hálfu námsári. Lágmarksárangur til að eiga rétt á láni er 20 ECTS einingar eða ígildi þeirra á námsárinu. Í skólum þar sem ekki eru notaðar ECTS einingar eru einingar skv. skipulagi skóla umreiknaðar í ECTS einingar.
Eftir að LÍN hefur greitt út námslánið í lok annar er lánið verðtryggt og bera allt að 3% vexti frá námslokum. Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar er vaxtaprósentan nú 1% frá námslokum.
Námsmaður getur fengið lán í hámark 5 ár samanlagt til grunnháskólanáms eða sérnáms. Leggi hann stund á framhaldsnám að loknu háskólaprófi (t.d. meistara eða doktorsnám) er heimilt að veita honum lán í allt að 10 ár samtals. Að jafnaði er lán ekki veitt lengur en 9 mánuði á almanaksári, en þó er heimilt að veita lán í allt að 11 mánuði þar sem skólar starfa lengur.
Af námslánunum er tekið 1,2% lántökugjald hjá LÍN og er það gert við útborgun lánsins í hvert skipti.
Frá því að sótt er um námslán og þar til lán er greitt út í lok annar þurfa nemendur að standa skil á eftirfarandi upplýsingum til LÍN. Staðfesting á skólavist: Staðfestinguna verða þeir námsmenn á Íslandi að senda sem borga há skólagjöld og einnig námsmenn erlendis sem eru að hefja nýtt nám. Umsóknin tekur ekki formlega gildi fyrr en slík staðfesting hefur borist sjóðnum. Útreikningur á láni: LÍN sendir Lánsáætlun til námsmanna / umboðsmanna og staðfestir þannig gildar umsóknir. Fyrirframgreiðsla skólagjalda hefst til þeirra sem eiga rétt á því. Skuldabréf: Þeir sem eru að sækja um námslán í fyrsta sinn eða hafa gert meira en árshlé á námi sínu fá sent skuldabréf til undirritunar. Enskumælandi lönd: Senda þarf til LÍN upplýsingar um skólagjöld og styrk/styrkleysi fyrir hverja önn eða allt námsárið. Endanleg tekjuáætlun: Staðfesta verður tekjuáætlun áður en útborgun haustlána fer fram. Námsárangur: Námslán eru afgreidd þegar námsárangur hefur borist. Skólar á Íslandi senda árangurinn beint til LÍN, en námsmenn erlendis verða að sjá um það sjálfir. Þeir sem ekki taka próf á miðjum vetri verða að senda staðfestingu á námsástundun. Útborgun láns: Lágmarksnámsárangur til að eiga rétt á láni er 20 ECTS einingar eða jafngildi þeirra. Greiðslan er lögð inn á bankareikning námsmanns. Skattframtal: Allir lánþegar verða að staðfesta endanlegar tekjur með afriti af skattframtali. Námsmenn á Norðurlöndunum verða einnig að senda afrit af álagningarseðlum. Í Danmörku årsopgørelse, í Noregi skatteoppgjör og Svíþjóð slutlig skatsedel. Barnlausir einstaklingar á Íslandi í leiguhúsnæði verða að skila leigumiða (RSK 2.02). Ef þú stendur skil á umbeðnum upplýsingum og uppfyllir reglur LÍN um námsframvindu, þá ábyrgist sjóðurinn að námslán þitt verður afgreitt á réttum tíma samkvæmt reglum sjóðsins.
Hægt er að sækja um viðbótarlán vegna skólagjalda erlendis og á Íslandi. Lánað er fyrir þeirri upphæð sem er umfram 45.000 kr. og fengna styrki ef einhverjir eru. Samanlögð lán til námsmanna vegna skólagjalda á Íslandi skulu aldrei vera hærri en 3.350.000 kr. eða sambærileg upphæð vegna skólagjalda erlendis. Í sérnámi og grunnháskólanámi erlendis gildir að ekki er veitt hærra skólagjaldalán en sem nemur 1/5 af samanlögðu hámarksláni. Námsmenn erlendis verða sjálfir að útvega upplýsingar um skólagjöld sem þeir þurfa að greiða, en skólar á Íslandi senda slíkar upplýsingar beint til sjóðsins.
Sótt er um ferðalán í gegnum Einkabankann, um leið og sótt er um námslán. Tekið skal fram að námsmenn þurfa ekki að senda LÍN staðfestingu um að ferð hafi verið farin.
Skiptinemar sem fá ekki styrk geta sótt um ferðalán. Skiptinemar sem fá styrk, s.s. Erasmus styrkþegar, eiga ekki rétt á ferðaláni frá LÍN. Hins vegar geta þeir skráð sig í leiguhúsnæði, ef þeir eru ekki að leigja hér á landi og fá þar af leiðandi hærri námslán frá LÍN.
Endurgreiðslur af námsláninu til LÍN hefjast tveimur árum eftir námslok og standa yfir þar til skuld er uppgreidd. Árlegri endurgreiðslu er skipt í tvennt. Annars vegar er föst afborgun, sem innheimt er á fyrri hluta ársins, óháð tekjum. Hins vegar er tekjutengd afborgun sem innheimt er á síðari hluta ársins, hún er háð tekjum og fjármagnstekjum fyrra árs að frádreginni föstu afborguninni.
Svar: já, en greiðslurnar geta tekið að lágmarki 5 virka daga að berast.
Svar: Námsmenn erlendis, með lánsáætlun frá LÍN, hafa margir hverjir fengið framfærslulán í erlendri mynt hjá Landsbankanum. Lánið hefur verið allt að 100% af lánsáætlun LÍN að teknu tilliti til vaxta. Þessir viðskiptavinir hafa því ekki þurft að taka á sig gengisáhættu. Þó er einhver hluti þessara Námufélaga með framfærslulán í íslenskum krónum og vill Landsbankinn reyna að koma til móts við þá í ljósi mikillar lækkunar á gengi íslensku krónunnar. Námufélagar eru hvattir til þess að hafa samband við sinn þjónustufulltrúa sem mun endurskoða fyrirliggjandi heimildir á framfærsluláni. Hver viðskiptavinur er metinn sérstaklega.
Sæktu um Námuna
Hafðu samband
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré