Landsbankinn býður námsmönnum erlendis upp á framfærslulán í erlendri mynt. Lánið er allt að 100% af lánsáætlun LÍN, að teknu tilliti til vaxta, og greitt út í þeirri mynt sem fram kemur á lánsáætlun LÍN. Þá getur námsmaðurinn fengið lánið greitt inn á reikning erlendis og þannig losnað við gengisáhættu.
Helstu kostir:
- Engin gengisáhætta
- Lægri vextir
- Lægri kostnaður
Spurningar og svör
Hvenær fær námsmaðurinn greitt út?
Hægt er að fá alla lánsáætlun greidda út í einu eða samkvæmt fyrir fram gerðri áætlun. Þegar sótt er um lánið getur námsmaðurinn gert áætlun um hvernig hann vilji draga á lánið og fengið greitt inn á reikning skv. þeirri áætlun. Ef aðstæður breytast getur námsmaður haft samband og breytt greiðslufyrirkomulagi.
Hvernig er greiðslum háttað?
Námsmaður fær greitt inn á reikning erlendis skv. áætlun og getur þá tekið peningana út. Námsmaður getur einnig fengið greitt inn á íslenskan reikning og tekið þá út með debetkorti.
Hvernig reiknast vextir?
Aðeins eru reiknaðir vextir af þeirri upphæð sem lántakandi nýtir sér.
Eru vextir þeir sömu og á venjulegum námsmannayfirdrætti?
Nei, vextir eru töluvert lægri.
Er hægt að greiða upp lánið?
Hægt er að greiða inn á lánið og greiða það upp hvenær sem er.
Hvernig endurgreiðir námsmaður ef tafir verða á námi?
Hvert tilvik er skoðað fyrir sig og reynt er eftir fremsta megni að leysa það með farsælum hætti.
Hvað kostar símgreiðslan f. námsmenn með yfirdrátt í erlendri mynt?
Sjá verðskrá Landsbankans hverju sinni.
Hvaða gögn þurfa námsmenn á leið til Bandaríkjanna að fá hjá bankanum áður en sótt er um vegabréfsáritun?
Námsmenn á leið til Bandaríkjanna þurfa að sýna bandaríska sendiráðinu fram á að þeir hafi nægilegt fjármagn til að fjármagna skólagöngu og uppihald meðan á námi stendur. Áætlun um lán eða staðfesting á yfirdráttarheimild duga ekki. Því verða námsmenn að framvísa reikningsyfirliti með núverandi innstæðu, annaðhvort í ISK eða USD, sem dugar fyrir skólagjöldum og framfærslu meðan á dvölinni stendur. Þú getur fengið skriflega staðfestingu í útibúi þínu þar sem viðskiptasamband þitt við bankann er staðfest.