Hvað þarf að fylgja með?
Frá því að umsókn um námslán berst til LÍN og þar til að lán er greitt út í lok annar þurfa nemendur að standa skil á tilteknum upplýsingum.
- Staðfesting á skólavist: Þeir námsmenn á Íslandi, sem greiða há skólagjöld, og þeir námsmenn erlendis, sem eru að hefja nýtt nám, verða að senda slíka staðfestingu. Umsóknin tekur ekki formlega gildi fyrr en staðfestingin hefur borist sjóðnum.
- Útreikningur á láni: LÍN sendir lánsáætlun til námsmanna eða umboðsmanna og staðfestir þannig gildar umsóknir. Fyrirframgreiðsla skólagjalda hefst til þeirra sem eiga rétt á því.
- Skuldabréf: Þeir sem eru að sækja um námslán í fyrsta sinn, eða hafa gert meira en árshlé á námi sínu, fá sent skuldabréf til undirritunar.
- Enskumælandi lönd: Senda þarf LÍN upplýsingar um skólagjöld og styrk/styrkleysi fyrir hverja önn eða allt námsárið.
- Endanleg tekjuáætlun: Staðfesta verður tekjuáætlun áður en haustlán eru greidd út.
- Námsárangur: Námslán eru afgreidd þegar upplýsingar um námsárangur hafa borist. Skólar á Íslandi senda þær beint til LÍN, en námsmenn erlendis verða að sjá um það sjálfir. Þeir sem ekki taka próf á miðjum vetri verða að senda staðfestingu á námsástundun.
- Útborgun láns: Lágmarksnámsárangur til að eiga rétt á láni er 18 ECTS-einingar eða jafngildi þeirra. Greiðslan er lögð inn á bankareikning námsmanns.
- Skattframtal: Allir lánþegar verða að staðfesta endanlegar tekjur með afriti af skattframtali. Námsmenn á Norðurlöndunum verða einnig að senda afrit af álagningarseðlum. Í Danmörku heitir það årsopgørelse, í Noregi skatteoppgjör og Svíþjóð slutlig skatsedel. Barnlausir einstaklingar á Íslandi í leiguhúsnæði verða að skila leigumiða (RSK 2.02).
