Ákvarðanir um fjármál eru mikilvægur þáttur í lífi fólks óháð aldri. Með þessum texta er leitast við að varpa ljósi á þær reglur sem gilda um meðferð fjármuna ófjárráða einstaklinga, einkum barna. Umfjöllunin er þó langt frá því að vera tæmandi.
Um lögræði er fjallað í lögræðislögum, nr. 71/1997. Einstaklingar verða lögráða 18 ára en þá öðlast þeir bæði sjálfræði og fjárræði. Börn eru því ófjárráða til 18 ára aldurs. Lögráðamenn fara með fjárhald barnsins fram að þeim aldri. Lögráðamenn eru foreldrar barns (kynforeldrar eða kjörforeldrar) sem fara með forsjá þess eða aðrir einstaklingar sem hefur verið falin forsjá barns samkvæmt barnalögum, nr. 76/2003 með formlegum samningi staðfestum af sýslumanni. Við skilnað eða samvistarslit foreldra er tekin ákvörðun um hvort þeirra skuli fara með forsjá barna þeirra eða hvort þau skuli eftir sem áður fara sameiginlega með forsjá. Ákvörðunin byggir á samningi foreldra staðfestum af sýslumanni eða úrskurði dómstóla.
Lögráðamaður ber ábyrgð á þeim fjármunum barns sem hann hefur umráðarétt yfir samkvæmt lögræðislögum. Lögráðamaður skal ávallt halda fjármunum barns aðgreindum frá eigin fjármunum. Misfari lögráðamaður með fé barns ber hann bótaábyrgð gagnvart barninu.
Samkvæmt lögræðislögum ræður barn ekki fé sínu nema lög kveði á um það. Lögráðamaður fer því með fjárhald þeirra fjármuna barns sem það ófjárráða ræður ekki yfir. Umráð lögráðamanns ná þó hvorki til eftirtalins fjár né vaxta og verðbóta af því:
Fjármunir barns skulu ávaxtaðir eins og best gerist á hverjum tíma. Lögráðamanni ber skylda til að fræða barnið og taka ákvarðanir varðandi fjárhag þess með hagsmuni þess að leiðarljósi. Við ráðstöfun fjármuna barns skal haft samráð við barnið eftir því sem kostur er miðað við þroska þess.
Í lögræðislögum eru fjármunir barna flokkaðir. Mismunandi reglur gilda um meðferð fjármunanna en í grófum dráttum má skipta þeim í þrennt:
Sýslumenn eru yfirlögráðendur hver í sínu umdæmi. Hlutverk þeirra felst m.a. í að hafa eftirlit með fjárhaldi lögráðamanna. Samþykki yfirlögráðanda er áskilið til ýmissa ráðstafana sem varða fjármuni barna og verða hér nefnd nokkur dæmi (ekki er um tæmandi upptalningu að ræða):
Rísi ágreiningur um meðferð fjármuna barns má bera þann ágreining undir yfirlögráðanda.
Skylt er að fylgja fyrirmælum yfirlögráðanda varðandi fjármuni barns.
Reglur þessar byggja á almennum reglum sem fram koma í lögræðislögum nr. 71/1997. Innlánsreikningur sem geymir fjármuni barns skal skráður á nafn barnsins. Nafn lögráðamanns skal þó ávallt koma fram á umsókn um stofnun reiknings. Mikilvægt er að fylla ávallt út umsókn um stofnun reiknings.
Barn sem er yngra en 12 ára getur ekki stofnað bankareikning án samþykkis lögráðamanns. Frá og með 12 ára aldri getur barn sjálft stofnað innlánsreikning með sjálfsaflafé og/eða gjafafé sínu. Lögráðamaður, gefandi eða atvinnurekendi hefur sömu heimild til stofnunar slíkra reikninga. Þegar um annað fé er að ræða en sjálfsaflafé eða gjafafé skal lögráðamaður undirrita umsókn um stofnun innlánsreiknings.
Þegar einstaklingur verður 18 ára fær hann yfirráð yfir fjármunum sínum. Bankareikningur, sem áður var undir fjárhaldi lögráðamanns, fellur þá undir fjárhald reikningseigandans.
Gefandi getur við stofnun innlánsreiknings barns sett fyrirmæli í umsókn um stofnun reikningsins um að einungis lögráðamaður eða lögráðamaður auk barns hafi úttektarheimild. Önnur skilyrði er gefanda ekki heimilt að setja.
Nauðsynlegt er að tilkynna breytingu á forsjá barns til bankans þar sem barnið er með reikning, enda eru upplýsingar um forsjáraðila ekki aðgengilegar bankanum.
Barnið og lögráðamaður þess hafa heimild til að fá upplýsingar um innlánsreikning barns, hvort sem um sjálfsaflafé, gjafafé eða annað fé er að ræða. Ekki er heimilt að gefa öðrum upplýsingar um innlánsreikninginn.
Barnið eitt hefur úttektarheimild.
Lögráðamaður einn hefur úttektarheimild.
Um önnur fjármálaviðskipti barna en að framan greinir, svo sem verðbréfaviðskipti, gilda sambærilegar reglur eftir því sem við getur átt.
Lögræðislög nr. 71/1997 eru aðgengileg á althingi.is
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré