Með Aukakrónum er viðskiptavinum umbunað fyrir góð viðskipti á einfaldan hátt. Það eina sem þú þarft að gera er að fá þér A-kort. Þá myndast sjálfkrafa inneign í Aukakrónum hjá Landsbankanum við alla innlenda notkun á kortinu.
Aukakrónur eru krónur sem kreditkorthafar fá endurgreiddar við notkun á A-korti. Uppsafnaðar Aukakrónur nýtast síðan sem greiðsla hjá samstarfsaðilum.
Til að safna Aukakrónum þarftu að vera með A-kort frá Landsbankanum, sem er kreditkort sem safnar Aukakrónum.
A-kortin safna Aukakrónum. A-kort eru eftirfarandi kreditkort: Almenn kort, Námukort, Gull og Platinumkort Vörðunnar.
Þeir sem eru með Almennt kreditort, Gull- eða Platinumkort frá Landsbankanum geta auðveldlega skipt úr öðrum fríðindakerfum yfir í A-kort. Við það að skipta um fríðindakerfi færð þú sent nýtt kort en PIN- og kortanúmer haldast óbreytt. Þú þarft því ekki að breyta boðgreiðslum eða læra nýtt PIN-númer. Hringdu í Ráðgjafa-og þjónustuver Landsbankans í síma 410 4000 eða sæktu um hér á vefnum til að breyta kortinu þínu í A-kort eða sækja um nýtt A-kort.
Nei. Saga Lounge er í eigu Icelandair og eingöngu Platinumkort sem eru Vildarkort VISA og Icelandair veita aðgang að þeirri stofu.
Nei. Söfnun á Aukakrónum er eingöngu í boði með A-kortum Landsbankans.
Já. Það er hægt að millifæra Aukakrónur milli Aukakrónureikninga, frá einum aðila sem safnar Aukakrónum til annars og gefa þannig viðkomandi innistæðuna í Aukakrónum. Ekki er hægt að millifæra Aukakrónur inn á venjulegan bankareikning.
Landsbankinn endurgreiðir 0,4%-0,5% af allri innlendri veltu í formi Aukakróna. Þ.e.a.s. fyrir hverjar 1.000 kr. sem þú greiðir innanlands með A-kortinu þínu færðu 4 eða 5 Aukakrónur endurgreiddar.Að auki endurgreiða samstarfsaðilar Aukakróna enn hærri prósentu ef þú velur að versla hjá einhverjum þeirra.
Já, uppsafnaðar Aukakrónur má nota hvenær sem er hjá samstarfsaðilum Aukakróna
Með öllum A-kortum Landsbankans fylgir sérstakt úttektarkort. Þegar þú vilt nýta uppsafnaðar Aukakrónur hleður þú þeim einfaldlega inn á úttektarkortið og notar það síðan hjá þeim samstarfsaðilum sem þér hentar. Hleðslan er gerð í Einkabankanum eða einfaldlega með því að hringja í Ráðgjafa- og þjónustuver í síma 410 4000. Lágmarkshleðsla eru 1.000 Aukakrónur.
Aukakrónur er eingöngu hægt að nota hjá samstarfsaðilum Aukakróna. Upplýsingar um samstarfsaðila Aukakróna fást hér .
A-kortin virka eins og önnur alþjóðleg kreditkort og er því tekið við þeim alls staðar þar sem hægt er að nota kreditkort á annað borð.
Nei. A-kortin er ekki hægt að tengja við Icelandair Saga Club.
Lágmarkshleðsla úr Aukakrónusjóði inn á úttektarkortið er 1.000 Aukakrónur. Hins vegar er hægt að nota Aukakrónukortið hjá samstarfsaðilum fyrir eins lága upphæð og hentar hverju sinni.
Nei. Það eru engin færslugjöld innheimt þegar þú notar Aukakrónurnar þínar hjá samstarfsaðilum.
Nei, eingöngu er boðið uppá VISA-kreditkort með Aukakrónusöfnun.
Það er ekki hægt að fá debetkort með Aukakrónusöfnun. Hins vegar fá Námufélagar tvær Aukakrónur fyrir hverja færslu á debetkortunum sínum. Þú getur líka fengið fyrirframgreitt kreditkort og getur þá safnað Aukakrónum.
Aukakrónur fyrnast á fjórum árum ef viðskiptavinur er óvirkur eða hættir í viðskiptum.
Nei, þegar þú sækir um að breyta kreditkortinu þínu í A-kort og byrja að safna Aukakrónum, færð þú nýtt útlit á kortið þitt en heldur sama kortanúmeri og PIN-númeri. Þú þarft því ekki að breyta boðgreiðslum eða læra nýtt PIN-númer.
Já, virkir Námu- eða Vörðufélagar fá Aukakrónur fyrir ýmis önnur viðskipti. Hér er yfirlit yfir söfnun í Námunni og Vörðunni .
Nei. Vildarpunktar Icelandair eru eign þín í vörslu Icelandair og haldast óbreyttir við skráningu í Aukakrónusöfnun.
Yfirlit yfir Aukakrónustöðu þína færðu í Einkabankanum, með símtali í Ráðgjafa- og þjónustuver eða með því að heimsækja útibú Landsbankans. Staðan á Aukakrónuinneign þinni kemur líka fram á kreditkortayfirlitinu þínu.
Aukakrónum sem safnast upp á hverju kortatímabili er bætt við inneign þína í hverjum mánuði, u.þ.b. 1-2 dögum eftir gjalddaga kreditkortsins.
Já. Þú getur fært þær af úttektarkortinu og þá bætast þær aftur við Aukakrónusjóðinn þinn.
Nei. Aukakrónur er aðeins hægt að nota með úttektarkorti hjá samstarfsaðilum.
Þrátt fyrir að kreditkortinu sé lokað er samt hægt að nota úttektarkortið eins og áður. Öll söfnun á Aukakrónum stöðvast hins vegar.
Nei, aðeins með A-kortum Landsbankans.
Nei. Þegar skipt er yfir í A-kort er eina breytingin sú að Landsbankinn hættir að bæta við veltutengdum Vildarpunktum inn í Vildarkerfi Icelandair en greiðir þér í staðinn Aukakrónur. Þitt samband við Icelandair Saga Club breytist ekki að öðru leyti. Punktainneign þín hjá Icelandair helst óbreytt þrátt fyrir að þú skiptir um fríðindakerfi hjá Landsbankanum.
Já, ef þú skiptir um fríðindakerfi hjá Landsbankanum úr vildarpunktum í Aukakrónur, breytist Vörðusöfnunin þín líka úr vildarpunktum í Aukakrónur. Þú færð sama fjölda af Aukakrónum fyrir hvern þjónustuþátt og þú fékkst af punktum. Hér má sjá yfirlit yfir söfnun fríðinda vegna Vörðunnar. Þrátt fyrir að skipta um fríðindakerfi heldur þú vildarpunktum sem þú hefur þegar áunnið þér og getur notað þá áfram ásamt því að safna Aukakrónum.
Já, A-kortin safna sjálfkrafa Aukakrónum við notkun, þú þarft heldur ekki að skrá þig sérstaklega í viðbótarsöfnun Vörðufélaga það gerist sjálfkrafa.
Nei. A-kortin bera engin aukagjöld umfram árgjaldið.
Hér getur þú sótt um A-kort. Einnig getur þú fengið frekari upplýsingar með því að hringja í Ráðgjafa- og þjónustuver Landsbankans í síma 410 4000 eða koma við í næsta útibúi Landsbankans.
Nei, það er ekki hægt. Yfirlit yfir Aukakrónustöðu færðu í Einkabankanum, með símtali í Ráðgjafa- og þjónustuver eða með því að heimsækja útibú Landsbankans.
Sæktu um A-kort
Breyttu korti í A-kort
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré