Að spara með korti er skemmtileg og auðveld sparnaðarleið. Í hvert skipti sem þú verslar með debet- eða kreditkortinu þínu leggur þú um leið upphæð til hliðar inn á sparnaðarreikning að þínu vali. Þannig byggir þú smátt og smátt upp sparnað sem hægt er að grípa til þegar á þarf að halda.
Hvað þarft þú að gera?
- Þú skráir þig í þjónustuna og velur tegund korts (debet- eða kreditkort), úttektarreikning og sparnaðarreikning.
- Þú velur sparnaðarleið:
- Hver færsla er hækkuð í næstu 100, 500 eða 1.000 kr. og mismunurinn er lagður inn á sparnaðarreikning þinn.*
- Hver færsla er hækkuð um fasta upphæð - 100, 250, 500 eða 1.000 kr. - sem lögð er inn á sparnaðarreikning þinn.*
- Þú verslar eins og vanalega. Bankinn reiknar saman sparnaðinn og leggur inn á þann sparnaðarreikning sem þú hefur valið. Einfalt og áreynslulaust.
*Athugið að ekki er sparað á yfirdrætti.
Notkunardæmi
-
Hækka í næstu 500 kr.
Þú kaupir fyrir 1.250 kr.
Færslan er hækkuð í 1.500 kr. Mismunurinn (250 kr.) er lagður inn á sparnaðarreikning þinn.
Þú hefur sparað 250 kr.
-
Hækka hverja færslu um 250 kr.
Þú kaupir fyrir 500 kr. Færslan er hækkuð um 250 kr. sem lagðar eru inn á sparnaðarreikning þinn.
Þú hefur sparað 250 kr.
Sparnaður*
|
Sparnaður á færslu |
Sparnaður á mánuði |
Sparnaður á einu ári |
| Hækkað upp í |
|
|
|
| 100 kr. |
50 kr.** |
1.000 kr. |
12.000 kr. |
| 500 kr. |
250 kr.** |
5.000 kr. |
60.000 kr. |
| 1.000 kr. |
500 kr.** |
10.000 kr. |
120.000 kr. |
| Hækkað um |
|
|
|
| 100 kr. |
100 kr. |
2.000 kr. |
24.000 kr. |
| 250 kr. |
250 kr. |
5.000 kr. |
60.000 kr. |
| 500 kr. |
500 kr. |
10.000 kr. |
120.000 kr. |
| 1.000 kr. |
1.000 kr. |
20.000 kr. |
240.000 kr. |
* M.v. 20 færslur á mánuði
**Að meðaltali
Skilmálar
Nánar um þjónustuna