Stýring eigna

Alhliða þjónusta

Stýring eigna býður upp á sérsniðna eignastýringu fyrir lögaðila þar með talið fyrirtæki, styrktarsjóði og lífeyrissjóði. Í stýringu eigna er einnig boðið upp á alhliða þjónustu fyrir lífeyrissjóði þar sem séð er um allan rekstur lífeyrissjóðsins þar með talið bókhald, móttaka lífeyrisiðgjalda, útreikning og útgreiðslu lífeyris, ásamt skýrslugerð til opinberra aðila og ársreikningagerð.

Í dag eru starfsmenn deildarinnar 8 talsins og búa yfir 90 ára starfsreynslu á sviði fjármála.

Fjárfestingarstefna og virk stýring

Í upphafi er mótuð fjárfestingarstefna sem tekur mið af markmiðum og aðstæðum hvers viðskiptavinar. Sérfræðingar Eignastýringar sjá síðan um að fjárfesta fyrir viðskiptamenn sína innan þess ramma sem markaður hefur verið.

Ítarleg yfirlit með upplýsingum um eignastöðu og hreyfingar tímabilsins eru send út. Auk reglulega eru haldnir upplýsingafundir með viðskiptavinum.

Eignasamsetning safnsins er þannig í stöðugri endurskoðun, sem er nauðsynlegt í síbreytilegu umhverfi. Með þessu er stefnt að hámarksávöxtun fyrir viðskiptavininn. Eignasafni viðskiptavina er að sjálfsögðu haldið aðskildu frá eignum annarra og eignum bankans.


Starfsfólk Stýringar eigna
Nafn Netfang Símanúmer
Eyrún Anna Einarsdóttir, forstöðumaður eyrun.a.einarsdottir@landsbankinn.is 410 7191
Sigurður B. Stefánsson, formaður fjárfestingarráðs sigurdur.b.stefansson@landsbankinn.is 410 7122
Guðni Hafsteinsson gudni.hafsteinsson@landsbankinn.is 410 7143
Halldór Kristinsson halldor.kristinsson@landsbankinn.is 410 7192
Pétur Pétursson petur.petursson@landsbankinn.is 410 6662
Valgeir Geirsson valgeir.geirsson@landsbankinn.is 410 7165
Valur Ægisson valur.aegisson@landsbankinn.is 410 7168
Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir vigdis.s.hrafnkelsdottir@landsbankinn.is  410 7161