Eignastýring og ráðgjöf

Landsbankinn býður fjölbreytta ráðgjöf og sérhæfða fjármálaþjónustu sem sniðin er að þörfum hvers og eins.

Þjónusta við allra hæfi

Eignastýring Landsbankans þjónar viðskipta-vinum varðandi alhliða eignastýringar-þjónustu. Þjónustan getur falist í ráðgjöf um lífeyrissparnað, reglubundinn sparnað í formi innlánsreikninga og/eða verðbréfasjóða, fjárfestingar í verðbréfum eða stýringu
á eignasafni. Hlutverk sérfræðinga eigna-stýringar er að aðstoða viðskiptavini við val
á sparnaðarleiðum og uppbyggingu á eigna-

safni, allt eftir stöðu og markmiðum þeirra.

Sérfræðingar bankans sjá um að fylgjast með og meta þá fjárfestingarkosti og þau tækifæri sem verðbréfamarkaðir hafa upp á að bjóða á hverjum tíma. Kappkostað er að veita persónulega þjónustu og finna ávöxtunarleiðir sem hentar hverjum og einum. Starfsemi sviðsins er þannig skipt upp eftir þeim þjónustuþáttum sem þau veita viðskiptavinum sínum.


Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf

  • Traust fjármálaráðgjöf þér að kostnaðarlausu
  • Ráðgjöf við uppbyggingu eignasafns
  • Regluleg upplýsingagjöf
  • Milliganga um kaup og sölu verðbréfa
  • Ráðgjafasöfn

Nánar

Einkabankaþjónusta

  • Alhliða fjármálaþjónusta.
  • Heildstæð fjármálaþjónusta fyrir efnameiri einstaklinga.
  • Sérfræðingar sjá um eignasöfn viðskiptavina.
  • Virk eignastýring eða ráðgjafarsamningur

Nánar


Stýring eigna

  • Stýring eignsafna fyrir lífeyrissjóði, fyrirtæki og aðra lögaðila.
  • Heildarumsjón: M.a. bókhalds- og iðgjaldaþjónusta fyrir lífeyrissjóði
  • Virk eignastýring: Stýring eigna skv. skilgreindri fjárfestingarstefnu.
  • Upplýsingagjöf: Ítarleg yfirlit og reglubundnir upplýsingafundir.

Nánar