Stighækkandi ávöxtun eftir innstæðu
Vaxtareikningur er óverðtryggður sparireikningur með stighækkandi vöxtum eftir innistæðu. Reikningurinn er sveigjanlegur og hentar vel þeim sem vilja ávaxta fé sitt á góðum kjörum en þó vera lausir við langan binditíma. Hver innborgun er eingöngu bundin í 7 daga (innborgunardagur ekki meðtalinn), en eftir það er hún ávallt laus til útborgunar. Engin krafa er gerð um lágmarksinnistæðu – enn einn kostur fyrir þá sem kjósa sveigjanleika á góðum kjörum.
Vaxtareikningur ber stighækkandi vexti eftir innstæðu
| Þrep |
Upphæð |
Vextir gr. mánaðarlega |
Vextir gr. árlega |
| Grunnþrep |
0 - 199.999 |
1,74% |
1,75% |
| Fyrsta þrep |
200.000 - 999.999 |
1,74% |
1,75% |
| Annað þrep |
1.000.000 - 4.999.999 |
2,72% |
2,75% |
| Þriðja þrep |
5.000.000 - 19.999.999 |
3,01% |
3,05% |
| Fjórða þrep |
Yfir 20.000.000 |
3,59% |
3,65% |
Vaxtabreytingar geta orðið þrisvar í mánuði þ.e.a.s. 1., 11. og 21. hvers mánaðar.
Helstu kostir Vaxtareiknings
- Stighækkandi vextir eftir innistæðu (sjá töflu hér að ofan).
- Engin lágmarksinnistæða.
- Engin þjónustugjöld, innlausnargjöld eða aðrar þóknanir.
- Hvert innlegg er eingöngu bundið í 7 daga, innborgunardagur ekki meðtalinn (ef lagt er inn á mánudegi þá er upphæðin laus á þriðjudegi í vikunni þar á eftir).
- Val um að fá vexti greidda mánaðarlega eða um áramót.
Reikna sparnað
Vaxtareikningur Varðan 60
Góð ávöxtun án bindingar
Vaxtareikningur Landsbankans fyrir Vörðufélaga 60 ára og eldri hefur sömu eiginleika og Vaxtareikningur en er óbundinn. Reikningurinn hentar þeim sem vilja ekki binda fjármuni sína en engu að síður njóta góðrar ávöxtunar. Vextir fara stighækkandi eftir innistæðu og engin krafa er gerð um lágmarks inneign.