Gjaldeyrisreikningur

Ávöxtun í erlendum gjaldmiðlum

Gjaldeyrisreikningar eru reikningar fyrir þá sem vilja ávaxta fé sitt í erlendum gjaldmiðlum. Reikningarnir henta þeim sem eru með viðskipti í erlendri mynt og geta tekið áhættu vegna gengissveiflna.


Um tvo valkosti er að ræða

  • Óbundna reikninga, en þá er féð alltaf laust til útborgunar.
  • Bundna reikninga til 3 mánaða eða 6 mánaða, en þeir reikningar bera að jafnaði hærri vexti en óbundnir reikningar.