Framtíðin lögð með góðri ávöxtun
Framtíðargrunnur er hugsaður fyrir þá sem vilja spara og mynda sjóð fyrir börnin þegar þau komast á fullorðinsár. Innstæðan er laus til útborgunar við 18 ára aldur. Reikningurinn ber hæstu vexti almennra innlánsreikninga hverju sinni og er því góður kostur fyrir langtímasparnað.
Hægt er að velja um verðtryggðan eða óverðtryggðan Framtíðargrunn.
Fyrir einstaklinga sem náð hafa 15 ára aldri er boðið upp á að stofna óverðtryggðan Framtíðargrunn þar sem lágmarksbinditími verðtryggðra reikninga er þrjú ár.
Eiginleikar Framtíðargrunns
- Reikningurinn hentar vel sem sparnaðarform fyrir börn og unglinga.
- Reikningurinn er bundinn til 18 ára aldurs.
- Engin þjónustugjöld, innlausnargjöld eða aðrar þóknanir.
- Ef innstæða er ekki tekin út við 18 ára aldur heldur hún óbreyttum kjörum.
- Eftir 18 ára aldur er verðtryggði reikningurinn laus í 1 mánuð á 6 mánaða fresti.
- Auðvelt að hefja reglubundinn sparnað.
Framtíðargrunn er hægt að stofna í næsta útibúi Landsbankans.