Reikningur fyrir þá sem vilja spara fyrir húsnæðiskaupum
Fasteignagrunnur er sparireikningur í boði fyrir viðskiptavini, 15 til 35 ára í reglubundnum sparnaði. Reikningurinn er sniðinn að þörfum viðskiptavina sem vilja byrja að spara fyrir húsnæðiskaupum. Fasteignagrunnur er í boði bæði óverðtryggður með lágmarksbindingu til 12 mánaða og verðtryggður með lágmarksbindingu til 36 mánaða.
Eiginleikar Fasteignagrunns
- Mótframlag við reglubundinn sparnað.
- Innflutningsgjöf við fasteignakaup.
- Engin þjónustugjöld, innlausnargjöld eða aðrar þóknanir.
- Hægt er að taka einu sinni út af Fasteignagrunni, fyrst við 18 ára aldur.
- Úttekt fyrst möguleg við 18 ára aldur.
- Loka þarf reikningnum í kjölfar úttektar.
- Hægt er að stofna einn reikning fyrir hvern viðskiptavin.
Mótframlag
Viðskiptavinir sem uppfylla skilyrði um 5.000 kr. reglubundinn sparnað á mánuði fá mótframlag í lok fyrstu tveggja sparnaðaráranna. Mótframlagið nemur meðaltals sparnaðarupphæð í reglubundnum sparnaði á árinu, að hámarki 10.000 kr. á hvoru sparnaðarári.
Við kaup á fasteign
Viðskiptavinir sem nýta innstæðu sína til fasteignakaupa og taka íbúðalán hjá Landsbankanum fá innflutningsgjöf, Gjafakort Landsbankans að upphæð kr. 20.000, fá 50% afslátt af lántökugjaldi og 35% afslátt af Heimilisverndartryggingu hjá Verði fyrsta árið.