Smelltu hér til að fá nánari skýringar og leiðbeiningar um þessa reiknivél Smelltu hér til að fela leiðbeiningarnar
Þú slærð inn upplýsingar um núverandi skuldir, sem í flestum tilvikum er að finna á greiðsluseðli, eins og:
Lán með jöfnum greiðslum er þannig að greiðslubyrði er dreift jafnt á allt lánstímabilið. Við stöðugt verðlag eru upphafsgreiðslur því hinar sömu og lokagreiðsla. Á fyrri hluta lánstíma eru greiðslur á gjalddaga töluvert lægri af jafngreiðsluláni en afborganaláni, en hlutfallið snýst við þegar fram í sækir. Heildarvaxtagreiðsla á lánstíma af jafngreiðsluláni er hærri en af afborganaláni því að höfuðstóllinn greiðist hægar niður.
Lán með jöfnum afborgunum er þannig að afborgun af höfuðstól helst óbreytt á lánstíma. Vextir á gjalddaga reiknast þá af síminnkandi höfuðstól. Heildargreiðslur á gjalddaga eru því hæstar í upphafi lánstíma en fara lækkandi eftir því sem á líður.
Þegar þú hefur slegið inn þessar upplýsingar um hvert lán ýtir þú á “reikna” og færð mynd af þróun afborgana og eftirstöðva núverandi lána.
Ef þú vilt fá upplýsingar um áhrif þess að skuldbreyta eða endurfjármagna eldri lán velur þú tegund skuldbreytingarláns í felliglugga hér að neðan og slærð inn umbeðnar forsendur.
Með því að slá á “reikna” færð þú upplýsingar um afborganir og þróun eftirstöðva af nýju láni ásamt óskuldbreyttum eldri lánum, í samanburði við þau lán sem þú kýst að skuldbreyta.
Ef þú hefur einverjar spurningar er þér velkomið að hafa samband við okkur í síma 410 4000, senda okkur tölvupóst á: landsbanki@landsbanki.is eða líta við í næsta útibúi.
Íbúðalán með breytilegum vöxtum
Óverðtryggt íbúðalán
Kjörvaxtalán
Almennt skuldabréfalán
Rafrænn greiðsluseðill
Stimpilgjald
Stimpilgjald er gjald sem skv. lögum þarf að greiða til ríkissjóðs við útgáfu veðskuldabréfs. Það nemur 1,5% af höfuðstóli lánsins án tillits til afsláttar af stimpilgjöldum.
Lánið er
Lánstími
Fyrsti vaxtadagur
Fyrsti gjalddagi
Vextir
Andvirði láns
Lánsfjárhæð
Markaðsverð fasteignar
Eftirstöðvar áhvílandi lána
Veðsetning fyrir
Veðsetning
Greiðsluhögun
Áætl. greiðslubyrði
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré