Skilmálar um útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar

1. Útgreiðsla viðbótarlífeyrissparnaðar er framkvæmd á grundvelli laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, sbr. bráðabirgðaákvæði VIII og IX sem tóku gildi 13. mars 2009, sbr. breytingar sem samþykktar voru 17. desember 2011 og taka gildi 1. janúar 2012.

2. Vörsluaðilum viðbótarlífeyrissparnaðar er heimilt, á tímabilinu 1. janúar2012 til 30. september 2012, að taka við umsóknum um útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar sem myndast hefur af viðbótariðgjaldi skv. II. kafla laga nr. 129/1997, að fjárhæð allt að kr. 6.250.000.

3. Við ákvörðun fjárhæðar til útborgunar skal draga frá hámarksfjárhæðinni (kr. 6.250.000) samanlagða fjárhæð þess viðbótarsparnaðar sem þegar hefur verið greiddur út til rétthafa á grundvelli umsóknar um útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar frá árinu 2009.

4. Eigi rétthafi gilda útgreiðsluáætlun og óskar eftir frekari útgreiðslum á hann kost á að halda gildri útgreiðsluáætlun óbreyttri og bæta nýrri útgreiðslu aftan við, svo framarlega sem greiðslur klárist í september 2013. Í þeim tilfellum þar sem útgreiðslufjárhæð rúmast ekki innan tímamarka þarf að afturkalla eldri samninga og sækja um að nýju samkvæmt breyttum lögum.

5. Fjárhæðin skal greiðast út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, að frádreginni staðgreiðslu samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, í 15 mánuði frá því að beiðni um útgreiðslu er lögð fram hjá vörsluaðila. Útgreiðslutími styttist hlutfallslega ef um lægri fjárhæð en kr. 6.2500.000 er að ræða. Full mánaðarleg útgreiðsla nemur kr. 416.667 fyrir skatt eða m.v. eftirfarandi skattþrep*.

  • Skattþrep 1 (37,34%) tekjuskattur á tekjur undir kr. 230.000.
  • Skattþrep 2 (40,24%) tekjuskattur á tekjur frá kr. 230.000 til kr. 704.367.
  • Skattþrep 3 (46,24%) tekjuskattur á tekjur yfir kr. 704.367.

6. Það er á ábyrgð rétthafa að gefa upp það skattþrep sem útgreiðslan skal skattlögð samkvæmt. Fjárhæð til útborgunar tekur mið af inneign viðbótarlífeyrissparnaðar eins og hún var við gildistöku laganna 1. janúar 2012. Ef fjárhæð sem sótt er um til útborgunar er ekki í samræmi við innstæðu á þeim tíma, er valin fjárhæð í samræmi við lögin og greitt út samkvæmt henni.

7. Staðgreiðsla er dregin af hverri greiðslu eins og um venjulegar launatekjur væri að ræða. Til þess að nýta persónuafslátt til frádráttar frá staðgreiðslu þarf rétthafi að skila skattkorti til bankans fyrir 10. dags þess mánaðar sem nýta á skattkortið í.

8. Vörsluaðili viðbótarlífeyrissparnaðar fer yfir umsókn rétthafa um útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar og hefur umsjón með útgreiðslu hans skv. heimild frá ríkisskattstjóra.

9. Eigi rétthafi inneign í fleiri en einni leið í sama sjóði verður greitt úr þeirri leið sem mesta inneign er í við gildistöku laganna, nema sjóðfélagi óski sérstaklega eftir öðru.

10. Greiðslur verða lagðar inn á reikning rétthafa 20. dags mánaðar.

11. Greiðslur geta ekki hafist fyrr en heimild hefur fengist frá ríkisskattstjóra (RSK) og mun Landsbankinn afla þeirrar heimildar.

12. Ef gengi lækkar á útgreiðslutíma, munu síðustu útgreiðslur lækka til samræmis við það.