Ávöxtunarleiðir

Ávöxtunarleiðir innan Íslenska lífeyrissjóðsins

Líf I: 16-44 ára
Fyrir einstaklinga sem vilja taka áhættu og ná góðri ávöxtun til lengri tíma. Sveiflur í ávöxtun geta verið miklar yfir skemmri tímabil en stefnt er að góðri langtímaávöxtun. Hentar því þeim sem eiga 20 ár eða meira eftir af lífeyrissöfnunartíma sínum.
Líf II: 45-54 ára
Fyrir einstaklinga sem vilja taka hóflega áhættu og ná góðri ávöxtun til lengri tíma. Sveiflur í ávöxtun safnsins geta verið þó nokkrar yfir skemmri tímabil en stefnt er að góðri langtímaávöxtun. Hentar því þeim sem eiga meira en 5 ár eftir af lífeyrissöfnunar-tíma sínum.


Líf III: 55-64 ára
Fyrir einstaklinga sem nálgast töku lífeyris eða eru nú þegar farnir að taka út lífeyri.


Líf IV: 65 ára og eldri
Líf IV hentar þeim einstaklingum sem nálgast töku lífeyris eða eru nú þegar farnir að taka út lífeyri. Lögð er áhersla á trausta og jafna ávöxtun.

Íslenski lífeyrissjóðurinn

Íslenski lífeyrissjóðurinn býður upp á fjórar ávöxtunarleiðir fyrir viðbótarlíferyrissparnað. Hver ávöxtunarleið tekur mið af aldri þess sem sparar en saman mynda þær Lífsbraut Íslenska lífeyrissjóðsins. Sjóðsfélagar færast sjálfkrafa á milli leiðanna Líf I, II, III og IV er þeir eldast.

Einblöðungur

Lífeyrisbók 

Verðtryggður eða óverðtryggður innlánsreikningur fyrir lífeyrissparnað sem hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað sinn á einfaldan og gagnsæjan hátt. Reikningarnir bera breytilega vexti.

Einblöðungur

Fjárvörslureikningur Landsbankans

Fjárvörslureikningur Landsbankans er fyrir þá sem vilja ráðstafa lífeyrissparnaði sínum í erlend verðbréf. Sveiflur í ávöxtun geta verið mjög miklar. Því hentar sjóðurinn þeim sem eiga langan tíma eftir af lífeyrissöfnunartíma sínum og þeim sem eru meðvitaðir um að sveiflur geta verið töluverðar.

Með Fjárvörslureikningi er fjárfest í erlendum hlutabréfum og skuldabréfum.
Fyrst og fremst er fjárfest í verðbréfasjóðum. 

Markmið Fjárvörslureikningsins er að skapa vettvang til að nýta helstu styrkleika fremstu sjóðstjórnunarfyrirtækja heimsins til þess að ná hámarksávöxtun með mikilli  áhættudreiflngu.

Fjárfest er m.a. í verðbréfasjóðum frá AllianceBernstein, Sparinvest og Dexia.

Einblöðungur