Viðbótar-lífeyrissparnaður

Viðbótarlífeyrissparnaður hefur fjölmarga kosti. Sá helsti er þó líklega mótframlagið þitt sem þýðir að þú færð greitt fyrir að spara. Þú getur lagt allt að 4% af launum þínum í viðbótarlífeyrissparnað og launagreiðendur greiða að jafnaði allt að 2% í viðbótarframlag.

Af hverju skiptir viðbótarlífeyrissparnaður máli?

Almennt tryggir lögbundinn lífeyrissparnaður aðeins um helming af meðallaunum yfir starfsævina. Þar við bætist að meðallaun eru gjarnan nokkuð lægri en lokalaun og því getur þú orðið fyrir verulegri tekjuskerðingu við starfslok.

Spurt og svarað um lífeyrissparnað


Kostir viðbótarlífeyrissparnaðar

  • Bætir lífskjör þín á efri árum
  • Mótframlag frá vinnuveitanda
  • Viðbót við þau 56% af meðallaunum sem lögbundinn lífeyrissparnaður tryggir þér
  • Erfist að fullu
  • Skattalegt hagræði
  • Ávöxtun er undanþegin fjármagnstekjuskatti

Reglur um viðbótarlífeyrissparnað Landsbankans


Dæmi um 4% framlag af launum

  • Framlag launþega: 8.000 kr.
  • Mótframlag 4.000 kr.
  • Til ávöxtunar: 12.000 kr.
  • Útborguð laun lækka um 4.982 kr.

Heildarinneign launþega við 60 ára aldur er 13.301.556 kr. m.v. 25 ára einstakling.

Reiknaðu dæmið hér

Þú velur þína ávöxtunarleið

Lífeyrissparnaður Landsbankans býður upp á sjö ólíkar ávöxtunarleiðir:

Einnig má velja að fylgja Lífsbraut Íslenska lífeyrissjóðsins þar sem sjóðfélagar færast sjálfkrafa á milli Líf I, II, III og IV eftir aldri.

Ávöxtun lífeyrissparnaðar (nafnávöxtun %) 31. janúar 2012
Veldu ávöxtunarleið Frá áramótum 2011 2010 2009 2008 2007 2006
Líf I: 16-44 ára 2,11 9,43 13,44 16,2 -22,5 8,1 20,4  
Líf II: 45-54 ára 1,76 9,99 11,85 15,1 -20,7   8,0  19,4 
Líf III: 55-64 ára 1,65 10,27 11,79 13,7 -19,7   9,4 14,8  
Líf IV: 65 árs+ 1,44 9,44 13,42 12,1 -19,2   14,2  11,3 
Lífeyrisbók verðtryggð 0,56 8,28 6,59 14,4 25,2   12,8 11,8
Lífeyrisbók óverðtryggð 0,28 3,24 5,65 11,4 16,1 14,1   11,3 
Fjárvörslureikningur 4,93 -2,72 0,32 34,8  16,3 -7,0   33,3