Útgreiðsla lögbundins lífeyrissparnaðar

Viltu ráðstafa þínum lífeyrissparnaði sem mest sjálf/ur? Eða viltu tryggja að sem mest af séreign þinni erfist? Þú getur valið um tvær útgreiðsluleiðir hjá Íslenska lífeyrissjóðnum. Munurinn felst í skiptingu milli sameignar , bundinnar séreignar og frjálsar séreignar .

Flestir sjóðfélagar velja Útgreiðsluleið I, en hún veitir meiri sveigjanleika við starfslok, sem og aukin örorku- og makalífeyrisréttindi.

Útgreiðsluleiðir Íslenska lífeyrissjóðsins

Sjá nánar um útgreiðslu

... hentar þér ef þú vilt eiga möguleika á að njóta sparnaðarins snemma og ráðstafa honum sem mest sjálf/ur. Frjáls séreign erfist, en samtrygging erfist ekki.

Sjá nánar um útgreiðslu

... hentar þér ef þú vilt leggja áherslu á að sem mest af séreign þinni erfist. Frjáls séreign og bundin séreign erfast, en samtrygging erfist ekki.

*Miðað við vísitölu neysluverðs 1. maí 2007. Upphæð breytist í samræmi við vísitölu neysluverðs.

Útgreiðsla úr sameign

Ellilífeyrir

Mánaðarlegur ellilífeyrir er greiddur frá 70 ára aldri til æviloka. Hafi sjóðfélagi valið útgreiðsluleið II, III eða IV hefjast greiðslur úr samtryggingu þó ekki fyrr en greiðslum úr bundinni séreign lýkur. Greiðslur úr frjálsri séreign hefjast í fyrsta lagi við 60 ára aldur.

Örorkulífeyrir

Ef starfsgeta skerðist vegna örorku er frjáls séreign laus til útborgunar á 7 árum, miðað við 100% örorku.

Nánar

Makalífeyrir

Makalífeyrir veitir eftirlifandi maka mikilvæga vernd við fráfall sjóðfélaga. Fullur makalífeyrir er 50% af áunnum  ellilífeyrisréttindum sjóðfélaga við andlát.

Nánar

Barnalífeyrir

Barnalífeyrir veitir börnum sjóðfélaga rétt á barnalífeyri til 18 ára aldurs ef sjóðfélagi verður öryrki eða fellur frá.

Útgreiðsla frjálsrar séreignar

Sömu reglur gilda um útgreiðslu frjálsrar séreignar, sem er hluti af lögbundna lífeyrissparnaðinum, og útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar.

Útgreiðsla vegna aldurs

Frjáls séreign er laus til útborgunar í eingreiðslu frá 60 ára aldri.

Nánar

Útgreiðsla vegna örorku

Ef starfsgeta skerðist vegna örorku er séreign laus til útborgunar á 7 árum, miðað við 100% örorku. Útgreiðslan dreifist yfir lengri tíma ef örorkan er minni.

Nánar

Útgreiðsla vegna fráfalls

Viðbótarlífeyrissparnaður erfist að fullu við fráfall eftir reglum erfðalaga.

Nánar

Eingreiðsla

Ef viðbótarlífeyrissparnaður er lægri en 780.980 kr*. er heimilt að greiða hann út í eingreiðslu við 60 ára aldur, eða vegna örorku eða fráfalls.

Nánar

Skattlagning

Greiddur er almennur tekjuskattur af viðbótarlífeyrissparnaði með sama hætti og af öðrum lífeyri. Það leiðir af því að framlag til lífeyrissparnaðar er frádráttarbært frá skatti.

Nánar

Hefur þú greitt í fleiri en einn sjóð yfir ævina?

Flestir greiða til fleiri en eins lífeyrissjóðs yfir starfsævina. Réttindi til ellilífeyris, sem þú ávinnur þér í sameign hjá lífeyrissjóðum, haldast óskert þó þú hættir að greiða til þeirra og eru auk þess verðtryggð. Það er hins vegar ekki heimilt að flytja þessi réttindi á milli sjóða.

Þegar kemur að töku lífeyris er best fyrir þig að snúa þér til þess lífeyrissjóðs sem þú greiddir síðast til. Sá sjóður hefur milligöngu um að afla upplýsinga um það til hvaða lífeyrissjóða þú hefur greitt. Greiðslustofa lífeyrissjóðanna veitir þér einnig upplýsingar um þá sjóði sem þú hefur greitt til.

Skipting ellilífeyrisréttinda milli hjóna

Hjón, fólk í óvígðri sambúð eða staðfestri samvist geta valið um að skipta á milli sín ellilífeyrisréttindum sem þau ávinna sér í lífeyrissjóðum. Skipting ellilífeyrisréttinda getur til að mynda komið sér vel ef annar aðilinn er með mun hærri lífeyrisréttindi en hinn.

Heimilt er að framselja allt að helming ellilífeyrisréttinda til makans. Skipting ellilífeyrisréttinda skal vera jöfn milli hjóna eða sambúðarfólks, þ.e. báðir aðilar þurfa að skipta ellilífeyrisréttindum sínum til hins í sama hlutfalli.

Ellilífeyrisréttinda er hægt að skipta með eftirfarandi hætti:

  • Lífeyrisgreiðslur sem verið er að greiða út.
  • Þegar áunnin ellilífeyrisréttindi sem áunnust meðan hjúskapur, óvígð sambúð eða staðfest samvist hefur staðið eða stóð yfir.
  • Ellilífeyrisréttindi sem ávinnast munu í framtíðinni.

Sjá einnig bækling frá Landssamtökum Lífeyrissjóða: Skipting ellilífeyrisréttinda milli hjóna

Samtrygging er sá hluti framlags þíns sem fer í sameignardeild lífeyrissjóðsins. Hún erfist ekki og ekki er hægt að flytja hana milli lífeyrissjóða. Sameignin tryggir þér ævilangan ellilífeyri sem og maka-, örorku- og barnalífeyri. Frjáls séreign er laus til útborgunar við 60 ára aldur.