Landsbankinn býður upp á Íslenska lífeyrissjóðinn sem skiptist í fjórar ávöxtunarleiðir : Líf I, Líf II, Líf III og Líf IV.
Já, ef þú ert ekki skyldug/-ur skv. lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi að greiða í annan lífeyrissjóð.
Allir vinnandi menn, launþegar og sjálfstætt starfandi, á aldrinum 16-70 ára verða að greiða í lífeyrissjóð skv. lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997. Skyldutrygging lífeyrisréttinda táknar þá skyldu að eiga aðild að lífeyrissjóði og til greiðslu iðgjalds til lífeyrissjóðs. Iðgjald til lífeyrissjóðs skal ekki vera lægra en 12% af iðgjaldastofni. Yfirleitt er framlag launþega 4% og launagreiðanda 8%. Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að greitt sé í lífeyrissjóð. Lífeyrissjóðir upplýsa Ríkisskattstjóra um greiðslur sjóðsfélaga.
Lögbundið iðgjald er skylda að greiða skv. lögum nr. 129/1997 en viðbótarlífeyrissparnaður er valfrjáls sparnaður.
Nei, allir verða að greiða í lögbundinn lífeyrissjóð. Einungis þeir sem greiða lögbundið iðgjald í lífeyrissjóð eiga rétt á því að greiða í viðbótarlífeyrissparnað, þ.e.a.s. þeir sem uppfylla skyldu sína til lágmarkstryggingarverndar lögum samkvæmt.
Tryggingarverndin í lífeyrissjóðum kallast lágmarkstryggingarvernd. Lágmarkstryggingarvernd veitir rétt til elli-, örorku-, barna- og makalífeyris. Með þetta í huga er því mjög mikilvægt að greiða í lífeyrissjóð. Miðað við 40 ára innngreiðslutíma í lífeyrissjóð tryggir lágmarkstryggingarvernd 56% af meðallaunum í mánaðarlegan ellilífeyri til æviloka.
Íslenski lífeyrissjóðurinn er séreignarsjóður. Hluti af iðgjaldinu í séreignarsjóði fer í séreign, bundna og/eða frjálsa. Séreign erfist að fullu. Í sameignarsjóði fer allt iðgjaldið í sameign en sameign erfist ekki.
Hægt er að skipta um lífeyrissjóð. Hins vegar er vert að taka fram að þegar skipt er um lífeyrissjóð er það eingöngu séreignin sem er flutt á milli sjóða sé óskað eftir flutningi á inneign. Sameignarhlutinn verður eftir í gamla sjóðnum, og ávaxtast þar. Þetta hefur þó engin áhrif á þá útgreiðslu sem þú færð þegar kemur að því að fá greitt úr lífeyrissjóðnum, því engin réttindi tapast við millifærsluna. Algengt er að fólk eigi réttindi í fleiri en einum sjóð. Það er góð regla að fara ávallt vel yfir öll yfirlit sem þú færð send heim og geyma vel. Þegar svo kemur að töku lífeyris er það skylda lífeyrissjóða að kanna rétt manna hjá öðrum lífeyrissjóðum. Þannig að svo lengi sem þú ert að skipta á milli sjóða sem eru í "samkomulagi um samskipti lífeyrissjóða", heldur þú öllum réttindum við skiptin. Íslenski lífeyrissjóðurinn er aðili að þessu samkomulagi.
Við hvetjum þig til að hringja í síma 410 4040 eða senda okkur póst á lifeyrissparnadur@landsbanki.is ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré