Lífeyrissjóðir í vörslu Landsbankans

Eftirtaldir lífeyrissjóðir eru í vörslu Landsbankans. Smellið á nafn lífeyrissjóðs til að fræðast nánar um þá.

Kjölur lífeyrissjóður

Kjölur lífeyrissjóður er samtrygginarsjóður í umsjón Landsbankans sem sér um fjárvörslu og ávöxtun á fé sjóðsins auk þess að sjá um bókhaldsmál og lífeyrisgreiðslur til sjóðsfélaga. Kjölur varð til með sameiningu fimm lífeyrissjóða, þ.e. Lífeyrissjóðs Mjólkursamsölunnar, Eftirlaunasjóðs Olíuverslunar Íslands, Lífeyrissjóðs Flugvirkja, Lífeyrissjóðs starfsmanna áburðarverksmiðjunnar og Lífeyrissjóðs Eimskipafélags Íslands.

Nánar

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands er í umsjón Landsbankans sem sér um fjárvörslu og ávöxtun á fé sjóðsins auk þess að sjá um bókhaldsmál, iðgjöld og lífeyrisgreiðslur til sjóðsfélaga.

Nánar