Landsbankinn býður viðskiptavinum, sem eru með góða viðskiptahugmynd og vilja vinna að nýsköpun, upp á yfirdráttarlán á hagstæðari vaxtakjörum en á hefðbundnu yfirdráttarláni. Tilgangurinn er að auðvelda viðskiptavinum að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Lánin eru m.a. ætluð til tækjakaupa, kaupa á hugbúnaði, þátttöku í námskeiðum, kaupa á sérfræðiþjónustu eða sérfræðiráðgjöf og þátttöku í vörusýningum. Þegar sótt er um Nýsköpunarlán þarf viðskiptavinur að skila inn reikningi yfir útlagðan kostnað vegna viðskiptahugmyndarinnar.
Lánsupphæð
- Allt að 750 þúsund krónur.
- Lánað er samkvæmt framlögðum reikningi.
Lánstími
- Lánstími er til allt að 48 mánaða.
Vextir
- Breytilegir vextir samkvæmt vaxtatöflu hverju sinni.
Afborganir
- Lántaki gerir skriflegan samning við bankann um reglubundna greiðslu af launareikningi inn á lánið og þannig er það greitt niður á markvissan og reglubundinn hátt.
- Jafnar mánaðarlegar afborganir.
Gjöld
- Engin lántöku-, seðil- eða stimpilgjöld.
- Ekkert uppgreiðslugjald.
Aðrar upplýsingar
- Lántaki þarf að standast greiðslumat.
- Tryggingar eru samkvæmt útlánareglum bankans.
- Greiða má inn á lánið án kostnaðar.