Fyrsti vaxtadagur er upphafsdagur lánstímans, dagurinn þegar lántaki fær andvirði lánsins afhent.
Fyrsti gjalddagi er dagsetning fyrstu greiðslu. Fyrsti gjalddagi er almennt mánuði eftir fyrsta vaxtadag, en stundum er samið um annað. Hér má stilla fyrsta gjalddaga til að reikna með. Hann verður þó alltaf að vera síðar en fyrsti vaxtadagur.
Lánstíminn er tíminn frá fyrsta vaxtadegi til síðasta gjalddaga, í mánuðum talinn. Hann er að hámarki 36 mánuðir.
Þessi tala er tillaga að mánaðarlegri greiðslu (afborgun auk vaxta og gjalda). Ef hún er hærri en útreiknuð greiðsla m.v. fjölda mánaða gildir hún.
Upphæð lánsins er upphaflegur höfuðstóll þess.
Af þessari upphæð dregst upphafskostnaður lánsins (stimpilgjald, lántökugjald og útgáfa skuldabréfs), og þannig fæst út andvirði lánsins: sú fjárhæð sem lántaki fær afhenta við upphaf lánstímans.
Hér birtast nafnvextir lánsins á ársgrundvelli.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré