Framkvæmdalán til endurbóta

Landsbankinn býður hagstæð lán til framkvæmda og endurbóta á íbúðarhúsnæði og lán til styttri tíma á sérstökum kjörum. Einnig eru í boði langtímalán til framkvæmda á sömu kjörum og lán til fasteignakaupa.

Hvaða fjármögnunarleið hentar þér?

Verðtryggð íbúðalán

Verðtryggð íbúðalán á breytilegum vöxtum eru veitt gegn fyrsta veðrétti í fasteign. Íbúðalánið hentar viðskiptavinum sem kjósa lægri greiðslubyrði og hægari eignamyndun í flestum tilfellum.Lánað er til fasteignakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á fasteign.

Nánar   Sækja um

Óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum

Óverðtryggð íbúðalán á föstum vöxtum til 36 eða 60 mánaða hentar viðskiptavinum sem kjósa hærri greiðslubyrði og hraðari eignamyndun í flestum tilfellum. Mánuði áður en bindingu lýkur velur lántaki hvort festa eigi vexti aftur á þeim kjörum sem í boði verða eða endurfjármagna lánið hjá Landsbankanum án lántökukostnaða. Lánað er til fasteignakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á fasteign.

Nánar   Sækja um

Óverðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum

Óverðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum hentar viðskiptavinum sem kjósa hærri greiðslubyrði og hraðari eignamyndun í flestum tilfellum. Lánað er til fasteignakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á fasteign.

Nánar   Sækja um