Óverðtryggt með 6,85% föstum vöxtum í 60 mánuði
Óverðtryggt lán með föstum vöxtum í 5 ár í einu. Innan 30 daga fyrir endursetningu vaxta getur viðskiptavinur greitt inn á lánið eða greitt það upp án uppgreiðslugjalds.
Óverðtryggt með 6,15% breytilegum vöxtum
Óverðtryggt lán með breytilegum vöxtum. Vextir geyta breyst 1., 11. og 21. hvers mánaðar. Enginn uppgreiðslukostnaður á lánstímanum.
Óverðtryggt með 6,65% föstum vöxtum í 36 mánuði
Verðtryggt með 3,75% breytilegum vöxtum
Verðtryggt lán með breytilegum vöxtum. Vextir geta breyst 1., 11. og 21. hvers mánaðar. Enginn uppgreiðslukostnaður á lánstímanum. Verðbætur leggjast á höfuðstól mánaðarlega.
Höfuðstóll lánsins í heild, frá þessari upphæð dregst upphafskostnaður þ.e. stimpilgjald ríkissjóðs, lántökugjald og kostnaður samkvæmt verðskrá bankans.
Markaðsverð fasteignar sem veðsett er fyrir láninu og veðsetningarhlutfall lánsins reiknast út frá.
Lánstími má vera á bilinu 1 til 40 ár á óverðtryggðum lánum en 5 til 40 ár á verðtryggðum lánum.
Ársvextir.
Áætluð verðbólga sem útreikningur miðast við. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands er 2,5%.
Skuldfært
Tilkynningar- og greiðslugjald lækkar ef greiðslur eru skuldfærðar sjálfvirkt af bankareikningi.
Rafrænn greiðsluseðill
Tilkynningar- og greiðslugjald lækkar ef ekki er sendur greiðsluseðill og tilkynningar aðeins sendar í netbanka.
Vörðufélagi
Vörðufélagar greiða lægra lántökugjald.
Endurfjármögnun
Til 31. desember 2012 (skv. lögum) er ekkert stimpilgjald tekið ef endurfjármagna á íbúðalán.
Jafnar greiðslur
Í upphafi lánstíma jafngreiðsluláns eru greiðslurnar á gjalddaga lægri en af láni með jöfnum afborgunum, greiðslubyrðin er jöfn allan lánstímann, þ. e. vaxtahlutfall er hærra til að byrja með og hlutfall afborgunar er lægra.
Jafnar afborganir
Greiðslubyrðin er hæst í upphafi lánstíma en fer lækkandi eftir því sem líður á hann. Þessir skilmálar eru hagstæðari fyrir lánþegann þar sem heildarendurgreiðslan er minni en ef það væri með jöfnum greiðslum.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré