Óverðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum

Kostir láns

Óverðtryggð íbúðalán á breytilegum vöxtum hentar þeim viðskiptavinum sem vilja endurgreiða lán sín hraðar og forðast uppsöfnun verðbóta á höfuðstól. Lánað er til fasteignakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á fasteign.

Lánstími

  • Lánstími getur verið allt að 40 ár.
  • Viðbótarlán er til að hámarki 15 ára með jöfnum afborgunum.

Vextir

Óverðtryggð íbúðalán
Lánshlutfall Vextir
Allt að 70% 6,15%
70 til 85% 7,15%

Lánsfjárhæð og veðhlutfall

  • Hámarksveðhlutfall getur numið allt að 70% af markaðsvirði eða verðmati eignar en einnig er mögulegt að fjármagna allt að 85% með viðbótarláni.
  • Hámarksveðhlutfall getur numið allt að 70% af markaðsverðmæti fasteignar.
  • Hámarkslánshlutfall getur ekki orðið hærra en sem nemur samanlögðu brunabótamati og lóðamati íbúðarhúsnæðis.
  • Gerð er krafa um 1. veðrétt og að fasteign sé í eigu lántaka
  • Lágmarksfjárhæð er 1 milljón króna.

Afborganir

  • Lánin geta verið jafngreiðslulán (annuitet) eða með jöfnum afborgunum af höfuðstóli.
  • Viðbótarlán er með jöfnum afborgunum af höfuðstóli.
  • Gjalddagar eru mánaðarlega og hægt er að velja dag mánaðar.

 

Gjöld

  • Stimpilgjald er 1,5% og rennur til ríkissjóðs (engin stimpilgjöld þarf að greiða af fyrstu íbúð).
  • Til 31. desember 2012 (skv. lögum) er ekkert stimpilgjald er tekið ef endurfjármagna á íbúðalán. Stimpilgjald er fellt niður af þeim hluta nýja lánsins sem samsvarar uppreiknuðu virði eldra lánsins ásamt vanskilum.
  • Aðeins greiðist hálft stimpilgjald, 0,75%, ef um endurfjármögnun er að ræða.
  • Þinglýsingargjald sem rennur í ríkissjóð.
  • Lántökugjald, sem er 1%.
  • Ekkert lántökugjald er tekið ef aðeins á að endurfjármagna lán hjá Landsbankanum, enda hefur lántakandi áður greitt gjaldið.
  • Önnur gjöld samkvæmt gjaldskrá Landsbankans.
  • Ekkert uppgreiðslugjald.  

 

Ertu að kaupa þína fyrstu fasteign?

Lántakendur sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign og standa í skilum með lán sitt fá árlega endurgreiðslu frá bankanum um hver áramót í þrjú ár. Endurgreiðslan er sem nemur 0,25 prósentustigum af greiddum vöxtum lánsins og greiðist inn á skuldfærslureikning lántaka.

Ertu Vörðufélagi?

Aðrar upplýsingar

  • Blandað íbúðalán er í boði, hluti óverðtryggður og hluti verðtryggður.
  • Lántaki þarf að standast greiðslumat.
  • Veðflutningar lána eru heimilir (þar sem við á).

Greiðsluhögun

Jafnar afborganir

 

Þegar um jafnar afborganir af höfuðstól er að ræða er alltaf greitt jafn mikið af höfuðstól lánsins og leggjast uppsafnaðir vextir við afborgun höfuðstóls. Eignamyndun er jöfn yfir lánstímann.

Jafnar greiðslur (annuitet)

Jafnar greiðslur fela í sér að hver gjalddagi er jafn hár þeim næsta, að verðbótum undanskildum. Afborgun af höfuðstól er mjög lág til að byrja með og eignamyndun hraðari síðari hluta lánstímans en fyrri hluta hans.