Óverðtryggð íbúðalán

Óverðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum

Óverðtryggð íbúðalán á breytilegum vöxtum hentar þeim viðskiptavinum sem vilja endurgreiða lán sín hraðar og forðast uppsöfnun verðbóta á höfuðstól. Lánað er til fasteignakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á fasteign.

Nánar

Óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum

Landsbankinn býður nú óverðtryggð íbúðalán á föstum vöxtum til 36 eða 60 mánaða. Áður en kemur að lokagjalddaga fastvaxtatímabilsins velur lántaki hvort festa eigi vexti aftur á þeim kjörum sem í boði eru á þeim tíma, að öðrum kosti verður lánið með breytilegum óverðtryggðum vöxtum út lánstímann. Lánið skal vera á fyrsta veðrétti eða í samfelldri veðröð frá og með fyrsta veðrétti. Lánið hentar þeim sem vilja endurfjármagna lán hjá Landsbankanum án lántökukostnaðar. Einnig hentar lánið þeim sem vilja fremur hraða eignamyndun og forðast uppsöfnun verðbóta á höfuðstól.

Nánar