Endurfjármögnun eldri lána

Borgar sig að endurfjármagna eldri lán?

Til að lækka greiðslubyrði getur endurfjármögnun borgað sig ef í boði eru hagstæðari vextir en eru á láninu sem ætlunin er að endurfjármagna. Lækkun greiðslubyrði næst fram með lækkun vaxta og lengingu lánstíma. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir áhrifum þessara þátta á lækkun greiðslubyrði og þá sérstaklega þegar lánstími er lengdur.

Hvaða fjármögnunarleið hentar þér?

Óverðtryggð íbúðalán

Óverðtryggð íbúðalán í íslenskum krónum henta þeim viðskiptavinum sem vilja greiða lán sín hraðar niður og forðast uppsöfnun verðbóta á höfuðstól. Lánað er til fasteignakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á fasteign.

Nánar

Sækja um

Verðtryggð íbúðalán

Verðtryggð íbúðalán eru með breytilegum vöxtum til lengri tíma og henta þeim sem kjósa lægri greiðslubyrði og hægari eignamyndun í flestum tilfellum. Lánað er til íbúðakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á íbúðarhúsnæði. 

Nánar

Sækja um