Fasteignalán

Landsbankinn býður upp á fjölbreytt lán til íbúðakaupa, nýbyggingar, endurbóta á húsnæði eða endurfjármögnunar.

Ýmsar leiðir í fjármögnun fasteigna

Viðskiptavinum stendur til boða ýmsar leiðir í fjármögnun fasteigna. Lánshlutfall íbúðalána er allt að 85% af markaðsvirði eða verðmati eignar, 70% íbúðalán til allt að 40 ára og 15% viðbótarláni til allt að 15 ára. Íbúðalán og viðbótarlán eru í boði óverðtryggð með föstum eða breytilegum vöxtum og verðtryggð með breytilegum vöxtum. Í boði er einnig að blanda íbúðaláninu þar sem hluti er verðtryggður og hluti óverðtryggður.


Óverðtryggð íbúðalán

Óverðtryggð íbúðalán henta viðskiptavinum sem kjósa hærri greiðslubyrði og hraðari eignamyndun í flestum tilfellum. Lánað er til fasteignakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á fasteign.

Nánar

Verðtryggð íbúðalán

Verðtryggð íbúðalán á breytilegum vöxtum eru veitt gegn fyrsta veðrétti í fasteign. Íbúðalánið hentar viðskiptavinum sem kjósa lægri greiðslubyrði  og hægari eignamyndun í flestum tilfellum. Lánað er til fasteignakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á fasteign.

Nánar

Lán með fasteignaveði

Lán með fasteignaveði geta hentað þeim sem vantar til dæmis fjármagn til endurbóta á fasteign, endurfjármögnunar eða fasteignakaupa, svo dæmi séu tekin. Vextir ákvarðast af hlutfalli veðsetningar og er hægt að velja á milli verðtryggðra eða óverðtryggðra lána með breytilegum vöxtum.

Nánar

Endurfjármögnun

Til að lækka greiðslubyrði getur endurfjármögnun borgað sig ef í boði eru hagstæðari vextir en eru á láninu sem ætlunin er að endurfjármagna. Lækkun greiðslubyrði næst fram með lækkun vaxta og lengingu lánstíma. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir áhrifum þessara þátta á lækkun greiðslubyrði og þá sérstaklega þegar lánstími er lengdur.

Nánar

Greiðsluhögun

Jafnar afborganir

 

Þegar um jafnar afborganir af höfuðstól er að ræða er alltaf greitt jafn mikið af höfuðstól lánsins og leggjast uppsafnaðir vextir við afborgun höfuðstóls. Eignamyndun er jöfn yfir lánstímann.

Jafnar greiðslur

Jafnar greiðslur fela í sér að hver gjalddagi er jafn hár þeim næsta, að verðbótum undanskildum. Afborgun af höfuðstól er mjög lág til að byrja með og eignamyndun hraðari síðari hluta lánstímans en fyrri hluta hans.