Tryggingar

Vátryggingar

Þegar ökutæki er fjármagnað hjá Landsbankanum er skilyrði um að ökutækið sé með ábyrgðar- og kaskótryggingu.

Ábyrgðartrygging bætir fjárhagslegt tjón, bæði eigna- og líkamstjón, sem ökumaður veldur öðrum með notkun ökutækis. Tryggingin bætir ekki tjón sem verður á ökutæki þess aðila sem veldur tjóninu.

Kaskótryggingin hins vegar bætir skemmdir á eigin bifreið þegar ökumaður þess á sjálfur sök á óhappinu eða verður fyrir utanaðkomandi, bótaskyldu tjóni sem veldur skemmdum á ökutækinu. Nánari upplýsingar um skilmála tryggingafélagana er að finna á heimasíðum þeirra.

Landsbankinn og Vörður í samstarfi

VörðurVörður hefur það markmiði að bjóða viðskiptavinum viðeigandi vátryggingavernd á samkeppnishæfu verði. Félagið leggur áherslu á einföld og þægileg vátryggingarviðskipti og persónulega þjónustu.

Vörður hefur á að skipa þjónustulipru og vel upplýstu starfsfólki sem vinnur í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi. Lögð er áhersla á traust og áreiðanleika í samskiptum.

Vörður leggur áherslu á einfaldar og öruggar tryggingar á hagstæðu verði. Starfsfólk Varðar vinnur markvisst að því að efla þjónustu og vöruframboð. Heildartryggingalausnir eru í boði fyrir einstaklinga.