Ökutækjastyrkur
Þeir sem hafa fasta mánaðarlega eða árlega fjárhæð í ökutækjastyrk þurfa að greiða staðgreiðslu af þeirri upphæð. Nauðsynlegt er að halda aksturbók, halda saman kvittunum um rekstur og þess háttar svo hægt sé að óska eftir frádrætti á móti ökutækjastyrk.
Virðisaukaskattur af bifreiðum
Almennt innskattsbann er á hefðbundum fólksbifreiðum. Aðeins hefur borið á því að rekstaraðilar sem eru með bifreiðar á rekstrarleigu hafa verið að innskatta fólksbíla á bláum númerum. Það er með öllu óheimilt. Hins vegar eru ákveðin ökutæki, svokölluð Vsk-ökutæki sem er hægt að nýta til innskatts.
