Yfirtaka bílalána eða samninga

Yfirtaka á bílalánum og bílasamningum

Yfirtaka á bílasamningum er framkvæmd með því að útbúa nýjan samning en kostnaðurinn er sá sami og ef um hefðbundna yfirtöku væri að ræða.


Kröfur sem þarf að uppfylla

Umsækjandi þarf að uppfylla lánakröfur Landsbankans til að geta yfirtekið lán eða samning. Við yfirtöku á bílaláni og bílasamningi þarf hlutfall fjármögnunar, miðað við söluverð leigumunar, að vera skv. útlánareglum Landsbankans.

Umsókn samþykkt

Þegar starfsfólk Landsbankans hefur farið yfir umsóknina mun svar berast til baka. Skila þarf undirrituðum pappírum til Landsbankans, bíla- og tækjafjármögnunar í Sigtúni 42, 105 Reykjavík.

Upplýsingar sem þurfa koma fram eru

  • Fastnúmer bifreiðarinnar.
  • Akstur tækis í km.
  • Kaupverð.
  • Kennitala nýs leigutaka / skuldara.
  • Tryggingafélag nýs leigutaka/skuldara.
  • Athugið öll opinber gjöld af tækinu þurfa að vera greidd og tryggingar í skilum.

Kostnaður við yfirtökuna er samkvæmt verðskrá Landsbankans.