Bílasamningur

Val um þrjár tegundir bílasamninga

Bílasamningur er samningur milli viðskiptavinar og Landsbankans um kaup á bíl eða ferðavagni. Bankinn er þá skráður eigandi bílsins á samningstímanum en viðskiptavinur skattalegur eigandi. Í lok samningstímans eignast viðskiptavinur bílinn.


Óverðtryggðir bílasamningar á breytilegum vöxtum

Bílasamningur er jafngreiðslusamningur (annuitet) með breytilegum vöxtum og mánaðarlegum afborgunum. Landsbankinn er skráður eigandi á samningstímanum en í lok samningstímans eignast þú bílinn.

  • Allt að 75% fjármögnun
  • Samningstími er allt að 7 ár, að frádregnum aldri ökutækis
  • Vextir nú 8,70%*
  • Vextir eru auglýstir í vaxtatöflu Landsbankans
  • Jafngreiðslusamningur

* Vildarkjör til Vörðufélaga og núverandi skilvísra viðskiptavina Bíla- og tækjafjármögnunar.

Verðtryggðir bílasamningar á breytilegum vöxtum

Bílasamningur er jafngreiðslusamningur (annuitet) með breytilegum vöxtum og mánaðarlegum afborgunum. Landsbankinn er skráður eigandi á samningstímanum en í lok samningstímans eignast þú bílinn.

  • Allt að 75% fjármögnun
  • Samningstími er allt að 7 ár, að frádregnum aldri ökutækis
  • Vextir nú 7,80%*
  • Vextir eru auglýstir í vaxtatöflu Landsbankans
  • Jafngreiðslusamningur

* Vildarkjör til Vörðufélaga og núverandi skilvísra viðskiptavina Bíla- og tækjafjármögnunar.

Óverðtryggðir bílasamningar á föstum vöxtum

Bílasamningur er jafngreiðslusamningur (annuitet) með föstum  vöxtum í 36 mánuði og mánaðarlegum afborgunum. Landsbankinn er skráður eigandi á samningstímanum en í lok samningstímans eignast þú bílinn.

  • Allt að 75% fjármögnun
  • Samningstími er allt að 7 ár, að frádregnum aldri ökutækis
  • Fastir vextir til 36 mánaða, nú 9,25%
  • Vextir eru auglýstir í vaxtatöflu Landsbankans
  • Jafngreiðslusamningur

Mánuði áður en bindingu lýkur hefur leigutaki val um að greiða fasta vexti í næstu 36 mánuði á þeim kjörum sem í boði verða eða endurfjármagna samninginn hjá Landsbankanum án stofnkostnaðar, velji leigutaki hins vegar ekkert færist samningurinn sjálfkrafa á óverðtryggða breytilega vexti að bindingu lokinni.

Skipt um bíl á samningstímanum

Það er auðvelt að skipta um bíl á samningstímanum. Við bjóðum fjórar leiðir:

Sameiningarsamningur: Þú getur fengið viðbótarfjármögnun með minni tilkostnaði ef gerður er nýr samningur.
Bílaskipti: Þú flytur samninginn einfaldlega yfir á nýja bílinn.
Yfirtaka: Yfirtaka á bílasamningum er framkvæmd með því að útbúa nýjan samning.
Uppgreiðsla: Þú getur greitt upp samninginn án nokkurs aukakostnaðar.

Gjöld