Tryggingar kreditkorta

Ferðatryggingarnar eru innifaldar í árgjaldi kreditkortsins en þær eru mismunandi eftir kortum. Meginsjónarmið við samsetningu þeirra er að korthafi njóti jafnan öruggra slysa- og sjúkratrygginga ásamt þjónustu varðandi útvegun: læknis, sjúkrahúsvistar, heimflutnings og annars er lýtur að slysum eða veikindum á ferð erlendis.

Með því að greiða tilskilinn hluta ferðakostnaðar með kreditkorti frá Landsbankanum áður en ferð hefst, virkjar korthafi sjálfkrafa ferðatryggingar og viðlagaþjónustu um allan heim.

Vátryggingafélag Íslands (VÍS) sér um tryggingar allra kreditkorta Landsbankans bæði VISA og MasterCard korta. Starfsfólk VÍS metur tjón og greiðir út bætur samkvæmt tryggingaskilmálum. Korthafar eru vinsamlega beðnir að snúa sér beint til tjónadeildar VÍS með frekari spurningar.

Athugið að til að tryggja sem skjótastan afgreiðslutíma þurfa viðeigandi gögn að fylgja.
Tjónaskýrslur VÍS

Nánari upplýsingar veitir Vátryggingafélag Íslands, www.vis.is, sími: 560-5000.

SOS neyðaraðstoð

SOS International annast viðlaga- og neyðarhjálp fyrir kreditkorthafa Landsbankans. SOS International neyðarþjónustan er hluti af ferðatryggingu bæði Visa og MasterCard kortanna. Hvar og hvenær sem er veitir SOS International korthöfum aðgang að margvíslegri neyðarþjónustu og læknishjálp.

Sérstök neyðarkort eru gefin út og fylgja viðkomandi tegund greiðslukorts við útgáfu. Á kortunum eru tilgreind gjaldfrí símanúmer viðlagaþjónustu fyrirtækjanna auk annarra mikilvægra símanúmera sem tengjast VISA og MasterCard greiðslukortum Landsbankans. SOS International veitir í megindráttum rétt til þrenns konar aðstoðar án aukakostnaðar:

  • Útvegar læknishjálp.
  • Annast sjúkraflutninga, ferðalög vandamanna og flutning jarðneskra leifa heim ef korthafi lætur lífið erlendis.
  • Veitir tímabundna fyrirgreiðslu vegna sjúkrakostnaðar.

Þegar korthafi á ferðalagi erlendis lendir í slysi eða veikist er best að hafa samband beint við SOS International +45 7010 5050 sem gefur ráð um hvað gera skuli.

Þeir sem ekki treysta sér til að skýra vanda sinn á erlendu tungumáli geta haft samband á skrifstofutíma við:

  • Vátryggingaféla Íslands (VÍS) í síma: +354 560-5000.

Utan skrifstofutíma:

  • Vaktþjónustu VISA kortahafa í síma + 354 525-2211
  • Vaktþjónustu MasterCard korthafa í síma + 354 533 1400.

Við minnum korthafa á að tilkynna strax um glatað eða stolið kort.