Uppsetning búnaðar

Áður en þú getur byrjað að nota rafrænu skilríkin þarft þú að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum:

  1. Setja viðeigandi Nexus hugbúnað, sem les örgjörvann á debetkortinu, upp í tölvunni þinni.
  2. Stinga kortalesaranum, sem þú fékkst afhentan með debetkortinu, í samband við tölvuna eða nota innbyggðan lesara sé slíkur í tölvunni.

  3. Setja upp lesara með aðstoð hjálparkerfisins "Hardware Wizard", sem kemur sjálfkrafa upp á skjáinn þegar lesaranum hefur verið stungið í samband.
    • Ef hjálparkerfið opnast ekki sjálfkrafa þarf að keyra sérstakan rekil (e. Driver) fyrir lesarann. Hann gerir tölvunni kleift að tengjast við kortalesarann.
    • Sé innbyggður lesari í tölvunni þinni hleypurðu yfir þetta skref.
  4. Stinga kortinu í lesarann og nýta þér kosti rafrænna skilríkja.

  5. Í sumum tilvikum þarf að endurræsa tölvuna til að fá skilríkin til að virka.

  6. Ef skráning mistekst skal enduropna Nexus hugbúnaðinn.