Landsbankinn býður viðskiptavinum sínum upp á Meniga heimilisbókhald. Meniga er sjálfvirkt og veitir góða yfirsýn yfir fjármálin á myndrænan hátt, auðveldar áætlanagerð og aðstoðar við að finna góðar sparnaðarleiðir.
Kostir Meniga:
- Góð yfirsýn yfir fjármál heimilisins á myndrænan hátt
- Auðvelt í notkun og sjálfvirk flokkun færslna
- Samanburður við aðra notendur og sérsniðin sparnaðarráð
- Notendavæn áætlanagerð
Viðskiptavinir geta nú skráð sig í Meniga í gegnum netbankann sinn þeim að kostnaðarlausu. Með auðveldum hætti er hægt að hafa augun á útgjöldunum en viðskiptavinir geta stillt Mínar síður og valið útgjaldaflokka sem veita snögga yfirsýn yfir stöðu fjármálanna.
Spurt og svarað um Meniga
Farsímaútgáfa Meniga
Hægt er að fylgjast með stöðu heimilisfjármálanna, skrá nýjar peningafærslur og fá yfirlit yfir útgjöldin gegnum farsímalausnir Meniga. Notendur iPhone eða Android síma geta sótt Meniga forritið (app) sér að kostnaðarlausu með því að opna vafrann í símanum og fara inn á slóðina m.meniga.is.
Öryggi
Meniga leggur áherslu á að tryggja áreiðanlega og örugga meðferð upplýsinga. Kynntu þér öryggis- og persónuverndarstefnu og notkunarskilmála Meniga.